Tækið er á stærð við GSM síma og er sett inn í björgunarvesti. Þegar vestið springur út dettur vatnsnemi tækisins í sjóinn og það byrjar að senda neyðarkall. Neyðarkallið fær skipstjóri 20 sekúndum seinna, sem síðan setur björgunaráætlun skipsins í gang. Mínútu síðar kemur GPS staðsetning mannsins sem fallið hefur fyrir borð, og er hægt að sjá staðsetninguna á tækjabúnaði skipsins. SJÓKALL er fyrsta varan í sínum flokki sem fer í gang við snertingu vatns og sendir rauntíma GPS hnit frá manninum sem fallið hefur fyrir borð með VHF DSC merki í 8 móttakara úr allt að 10 sjómílna fjarlægð. Innan örfárra sekúndna við fall í vatn kveikir tækið sjálfkrafa á sér og sendir „man overboard“ neyðarkall til móðurskips (skipsins sem starfsmaðurinn féll frá) með aðstoð tækni sem þegar er skyldubúnaður í nánast öllum bátum við Ísland. Lesa meira

Öryggi

Augljós staðsetning og lega okkar lands, sem og sú staðreynd að undirstöðuatvinnuvegir okkar tengjast sterkum böndum við sjó, gera það að verkum að við höfum mikið undir því að öryggismál og velferð okkar sjófarenda sé góð.

Líf

Lífslíkur manns sem fallið hefur fyrir borð fara hríðfallandi því lengur sem hann er í sjónum. Hitastig sjávar fyrir utan landið er yfirleitt á bilinu 1-6°C. Í þeim kulda er tíminn naumur sem gefst til björgunar eigi maðurinn að lifa af. Því skiptir höfuðmáli að björgunaráætlun fari í gang um leið og slysið á sér stað.

Almennar upplýsingar
Rafhlöðugerð 3 x 3 Volt LiMnO2 ;CR2 rafhlöður
Rafhlöðuending í notkun Lágmark 24 klst í neyðarsendingu við -10°C og hlutfallslega lengur við heitari aðstæður
Rafhlöðuending í hillu +20°C 5 ár
Notkunarhitastig -20° til +55°C (-4° to +131°F)
Geymsluhitastig -30° til +70°C (-22° to +158°F)
Stærð (hæð ; breidd ; þykkt) 12 x 7.8 x 3cm (4.7 x 3 x 1.22in) að undanskildu loftneti og beltisklemmu
Þyngd 153g (5.4oz) að undanskildu loftneti og beltisklemmu
Áreiðanleiki Prufað samkvæmt IEC staðli 60945
Neyðarblikkljós Styrkleiki: 5 kyndla með 360° ljósdreifingu., Blikktíðni: 60 blikk á mín.
Umhverfis og veðurþol IP68 (10metra dýpi í 5 mín)
Festimöguleikar Háls og úlnliðsól ásamt beltisklemmu fylgir öllum tækjum.
Örugg fjarlægð frá seguláttavita 0.3m (fyrir lágmarks truflun)
Flothæfni Jákvæð flothæfni, marar í sjó.
Radíus neyðarsendingar 2 til 10 sjómílur, er háð ölduhæð og hæð móttökuloftnets frá sjó
Ábyrgðarskilmálar Stöðluð ábyrgð samkvæmt reglum og viðmiðum ríkisins.Umfram ábyrgð og tryggingu er hægt að fá með þjónustusamningi.
GPS Móttakari
Gervitunglamóttaka 20 hliðrænar rásir
Tími í fyrstu GPS staðsetn. (TTFF) Vanalega 45 til 60 sekúndur
Loftnet Quadrical helix loftnet
Loftnet
GPS næmni Tunglsöfnun -144dBm; Leiðsöguferlun -159dBm
Lofntetsgerð (Standard) Lóðrétt vísandi helix loftnet.
VHF DSC Tx W (afl sendingar) 500mW (100mW við prufu)
VHF Sendipakki
VHF DSC Channel 70 Aðvaranir
Upphafleg DSC aðvörun 20 sekúndur frá vatnsnæmni og eða handvirkjun
Firsta DSC GPS gagnaaðvörun Þegar GPS læsing er komin, vanalega milli 1 til 2 mínútna
Fjöldi DSC aðvarana, senditíðni Á 1 mínútu fresti fyrstu 30mín; Síðan á 5 mínútna fresti þar eftir þangað til slökkt er á Sjókalli

 

Viðurkenningar og staðlar

Framleitt eftir og samkvæmt eftirfarandi reglugerðum og stöðlum
Reglugerðir og Viðurkenningar RTCM’¹; FCC; AS/NZS²; C√;ACMA²;IEC³;AMSA;RoHS
Staðlar VHF DSC: Hannað samkvæmt ITU-R M. 493-11 og ITU-R M. 451-9;
Blikkljós: USCG SOLAS Björgunarjakkaljós; GPS: IEC staðall 61108-1;
DSC sendir: ITU-R M. 493-11 og ITU-R M. 451-9

¹ RTCM 11901.0: 2004 (Amdt 1 and Amdt 2); 2 AS/NZS 4415.2:2003; Standard 2004; Standards Australia Committee RC/4 MSLS DSC Standards 3 IEC Standard 61108-1 and 60945
CMM86.2





Samstarfsaðilar

Tryggingamiðstöðin Síldarvinnslan Björgunarsveitin Gerpir Garminbúðin Brimrún Sjókall-Þitt öryggi á sjó Sjókall-Þitt öryggi á sjó